Skip to content
Þú ert hér: Forsíða
Kynningarfundur með landeigendum um nýja veglínu 5. janúar 2012 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Þriðjudagur, 10. janúar 2012 08:22

Skipulags- og byggingarnefnd Mýrdalshrepps bauð landeigendum á svæði væntanlegrar nýrrar veglínu um Mýrdal til kynningarfundar um málið í Leikskálum fimmtudaginn 5. janúar kl. 20:00. Til fundarins var boðað á vef sveitarfélagsins, www.vik.is, þriðjudaginn 3. janúar. Í fundarboði segir: Á fundinum verða lagðar fram og kynntar nákvæmari teikningar af þeim svæðum sem væntanlegur vegur fer um.

Í upphafi fundar las Guðni Einarssons frá Þórisholti upp yfirlýsingu frá 10 landeigendum og gekk síðan af fundi. Að yfirlýsingunni standa eftirtaldir landeigendur:

Ásmundur Sæmundsson Hryggjum
Þorsteinn Gunnarsson Vatnskarðshólum
Eva Dögg Þorsteinsdóttir Garðakoti
Helgi Númason Norðurgarði
Atli Hróbjartsson Brekkum
Guðni Einarsson Þórisholti
Grétar Einarsson Þórisholti
Guðrún María Gunnarsdóttir Reynisholti 2 og 3
Ólafur Guðjónsson Kvíabóli
Jakobína Ragnarsdóttir Görðum


Yfirlýsingin:



Viðtakandi:

Skipulags- og byggingarnefnd Mýrdalshrepps
Austurvegi 17
870 Vík

Við undirritaðir landeigendur í Mýrdalshreppi lýsum furðu okkar á vinnubrögðum skipulags- og byggingarnefndar við boðun kynningarfundar um nýja veglínu með landeigendum í Mýrdal í kvöld.

Til fundarins er boðað með einungis tveggja daga fyrirvara með tilkynningu á vef sveitarfélagsins þrátt fyrir að fundurinn hafi verið löngu ákveðinn samanber fundargerð nefndarinnar frá 8. desember, en hún var ekki birt á vef sveitarfélagsins fyrr en í gær, 4. janúar.

Þessi stutti fyrirvari er óskiljanlegur. Svo virðist sem skipulags- og byggingarnefnd ætlist til þess að landeigendur og aðrir hagsmunaaðilar fari daglega inn á vef sveitarfélagsins til að athuga hvort þeir séu boðaðir á fund. Ætla mætti að þeir landeigendur sem ekki eru búsettir í sveitarfélaginu séu óvelkomnir þar sem fundurinn er boðaður með svo stuttum fyrirvara.

Í plagginu „Viðbrögð við athugasemdum“ dagsett í desember 2011 sem birt var á vef sveitarfélagsins í gær segir: „ ... unnt hefði verið að hafa enn meira samráð í skipulagsvinnunni en lög gera ráð fyrir. Til að bregðast við þessum ábendingum mun Mýrdalshreppur boða til fundar með landeigendum“.

Okkur er fyrirmunað að sjá að tilgangurinn með þessum fundi sé að bæta fyrir skort á samráði við landeigendur í skipulagsvinnunni. Sveitarstjórn samþykkti á fundi sínum 15. desember s.l. breytingu á aðalskipulaginu og framlagningu þess til Skipulagsstofnunar. Kynning á löngu teknum ákvörðunum sem teknar voru án viðhlítandi samráðs við okkur um nýja veglínu í gegnum eignarlönd okkar, sem við höfum mótmælt með sterkum rökum og greinargerðum, er ekki samráð, heldur framhald á þeim yfirgangi sem við og aðrir eigendur lands og fasteigna höfum mátt þola af sveitarstjórn Mýrdalshrepps.

Við mótmælum þessum vinnubrögðum sveitarstjórnar og skipulags- og byggingarnefndar Mýrdalshrepps harðlega og sjáum ekki tilgang í að taka þátt í sýndarmennsku af því tagi sem fundur þessi ber  augljósan vott um.

Í Mýrdalshreppi, 5. janúar 2012

Afrit:

Sveitarstjórn Mýrdalshrepps, Austurvegi 17, 870 Vík
Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, 105 Reykjavík
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 10. janúar 2012 08:32
 
Fjöldi ófærðar/lokunardaga á leiðinni Vík-Jökulsá og á Mýrdalssandi 2001-2010 Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Föstudagur, 09. desember 2011 12:20

Hér eru upplýsingar um fjölda ófærðar/lokunardaga á leiðinni Vík-Jökulsá og á Mýrdalssandi árin 2001-2010.

Á þessu tímabili hefur leiðin Vík-Jökulsá lokast að meðaltali í 0,7 daga á ári og Mýrdalssandur hefur lokast í 0,4 daga á ári. Í 5 ár af 10 lokuðust leiðirnar aldrei af völdum veðurs eða ófærðar.

Nánar...
 
Umsagnir um drög að aðalskipulagstillögu Mýrdalshrepps 2012-2028. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Þriðjudagur, 22. nóvember 2011 16:54

Umsagnir um drög að aðalskipulagstillögu Mýrdalshrepps 2012-2028 verða birtar á vefnum, með leyfi höfunda. Sendið umsagnir á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ef þið viljið fá umsögn ykkar birta á www.myrdalur.is.

Opinberir aðilar

Umhverfisstofnun
Vegagerðin

Félagasamtök

Landvernd
Fuglavernd
Samtök verslunar og þjónustu

Einstaklingar

Sjö einstaklingar sem eru íbúar og eigendur fasteigna og lands í Mýrdalshreppi
Eigendur Þórisholts og Þórisholts ehf. um breyttri legu þjóðvegar 1 og drög að umhverfisskýrslu
Eigendur Þórisholts og Þórisholts ehf. um þjónustusvæði á suðurbrún Reynisfjalls, (V15 ýmis ferðaþjónusta við Reynisfjall)
Íris og Ívar, Þórisholti
Umsögn frá Vatnsskarðshólum
Umsögn frá Hryggjum
Fimm eigendur Djúpaleitis
Íbúar í Sigtúni 1, Vík
Gunnar Á Gunnarsson
Sandra Lee Best
Erla Bil Bjarnardóttir
Guðrún María Gunnarsdóttir
Óskar Ólafsson og Margrét S. Gunnarsdóttir
Ingi S Ingason
Ólafur Jónsson
Kjartan Jónsson

Síðast uppfært: Fimmtudagur, 08. desember 2011 22:45
 
Áætlun Siglingastofnunar um veghæð og hæð sjóvarnar fyrir vegstæði framan við Vík í Mýrdal. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Mánudagur, 21. nóvember 2011 00:00

Að beiðni Vegagerðarinnar hefur Siglingastofnun gert grófa áætlun eða minnisblað um veghæð og hæð sjóvarnar fyrir vegstæði framan við Vík í Mýrdal. Áætlunin er dagsett í október 2011.

Í inngangi minnisblaðsins er áréttað er að um grófa áætlun sé að ræða og nauðsynlegt að skoða hina ýmsu þætti og samlíkur þeirra nánar áður en endanleg hæðasetning fer fram. Áætlunin er í viðhengi hér að neðan.

Hér er stuttur útdráttur með helstu niðurstöðum minnisblaðsins:

  • Suðurströnd Íslands er meðal þeirra strandsvæða í heiminum þar sem öldur eru hæstar. Ströndin við Vík er eins langt frá því að vera í jafnvægi sem verið getur. Því er töluverð óvissa um það hvort eða hvar ströndin nær jafnvægi, hvort að það náist að stöðva rofið við núverandi sjávarkamb eða við varnarlínuna sem er nokkrum tugum metra innar.
  • Á árunum 1992 til 1995 [...] var skilgreind varnarlína þar sem fyrst yrði gerð flóðavörn og síðar ef nauðsynlegt reynist ölduvörn til varnar landbroti.
  • Vegstæði það sem verið er að skoða í skýrslu þessari er utan við varnarlínuna.
  • Eins og í flestum sveitarfélögum landsins eru nokkur hæðakerfi í notkun. Sjókerfið eða hafnarkerfi sem Siglingastofnun notar miða við að núllið sé um 0,1 m neðan við stórstraumsfjöru.
  • Í þessu minnisblaði eru allar hæðir gefnar í sjókerfi, hæðakerfi Siglingastofnunar.
  • Hæð sjávarkambsins í Vík framan við íþróttavöllinn þar sem mest mæðir á er í um +7,0 til +7,5 m hæð.
  • Hér er það metið svo að veghæðin eigi að vera á bilinu +6,5 m til +7,5 m með sjóvörn sem sé um 0,6 m hærri eða í kóta +7,1 m til +8,1 m.
  • Veghæð í göngum þar sem komið er út úr Reynisfjalli við Vík þarf að taka tillit til sjávarstöðuhækkana vegna gróðurhúsaáhrifa.
  • Veghæð í göngum þarf að taka við af hæstu mögulegu sjávarstöðu á líftíma gangnanna auk upprennslis. Samkvæmt ofangreindu er sá kóti ekki lægri en +10,0 m í sjókerfi.
Viðhengi:
SkráLýsingSkráarstærð
Niðurhala þessari skrá (Vík-veghæð og sjóvörn-útgA.pdf)Vík-veghæð og sjóvörn-útgA.pdf 1854 Kb
Síðast uppfært: Mánudagur, 21. nóvember 2011 10:53
 
Minnisblað um umhverfisskýrslu með drögum að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028. Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Skrifað af: Kjartan Jónsson   
Þriðjudagur, 15. nóvember 2011 00:00

UMÍS ehf. Environice hefur að beiðni Samtaka íbúa og hagsmunaðila í Mýrdal tekið saman álitsgerð um umhverfisskýrslu sem er hluti af drögum að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028, dagsett í október 2011. Minnisblaðið er í viðhengi hér að neðan.

Í inngangi að minnisblaðinu segir meðal annars:

Eins og fram kemur í greinargerð með drögum að Aðalskipulagi Mýrdalshrepps 2012-2028 var aðalástæða þess að ráðist var í endurskoðun skipulagsins á þessum tímapunkti sú, að haustið 2010 synjaði umhverfisráðherra staðfestingu á þeim hluta aðalskipulags sem þá lá fyrir er varðar breytta veglínu Suðurlandsvegar um Mýrdal. Var í því sambandi vísað til tveggja atriða, annars vegar að um vanhæfi hafi verið að ræða við afgreiðslu málsins í sveitarstjórn og hins vegar að skort hafi á upplýsingar um áhrif vegarins á náttúru og samfélag í Mýrdal. Þessu minnisblaði er m.a. ætlað að varpa ljósi á hvort sú umhverfisskýrsla sem nú liggur fyrir nægi til að bæta úr síðarnefnda ágallanum.

 

Viðhengi:
SkráLýsingSkráarstærð
Niðurhala þessari skrá (Minnisblað UMÍS Umhvskýrsla Mýrdal 111114.pdf)Minnisblað UMÍS Umhvskýrsla Mýrdal 111114.pdf 129 Kb
Síðast uppfært: Þriðjudagur, 15. nóvember 2011 18:00
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 Næsta > Síðasta >>

Síða 1 af 10

Skráning á póstlista




Teljari

mod_vvisit_counterÍ dag2
mod_vvisit_counterÍ gær26
mod_vvisit_counterÞessa viku167
mod_vvisit_counterSíðustu viku189
mod_vvisit_counterÞennan mánuð860
mod_vvisit_counterSíðasta mánuð1261
mod_vvisit_counterÍ heild26752

Tengdir (síðustu 20 mín): 2
Í dag er: jan 29, 2012